Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi býður til opins fundar á Kontornum, Grenivík fimmtudaginn 2. maí kl. 20:00
Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu. Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.
Á fundinum mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og sína sýn á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi.
Verið innilega velkomin
Stuðningsfólk Höllu Hrundar