employee-journey-screen

Opinn fundur á Akureyri með Höllu Hrund

30/4/2024

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi býður til opins fundar á Mói Bistró þriðjudaginn 30 apríl. apríl kl. 20:00

Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu. Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.

Á fundinum mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og sína sýn á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi.

Verið innilega velkomin, léttar veitingar í boði

Stuðningsfólk Höllu Hrundar