employee-journey-screen

Kvöldfundur á Ísafirði í Edinborgarhúsinu

21/4/2024

Verið velkomin á opinn fund með Höllu Hrund Logadóttur frambjóðanda til embættis forseta Íslands.

Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu.

Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.

Á fundinum mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og sína sýn á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi. Þau sem hafa áhuga á að kynnast Höllu Hrund og framboði hennar betur eru hvött til að láta sjá sig!

Fundurinn verður haldinn í Bryggjusal í Edinborgarhúsinu.
Boðið verður upp á tónlistaratriði og fundarstjóri er Gylfi Ólafsson.

Stuðningsfólk Höllu Hrundar