Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi tekur á móti gestum og gangandi á kosningamiðstöð sinni, Nóatún 17.
Sunnudaginn. 5 maí.
Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu.
Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.
Þau sem hafa áhuga á að kynnast Höllu Hrund og framboði hennar betur eru hvött til að láta sjá sig.
Verið innilega velkomin, léttar veitingar í boði.
Stuðningsfólk Höllu Hrundar