employee-journey-screen

Netfundur fyrir Íslendinga búsetta erlendis með Höllu Hrund

19/5/2024

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi býður til netfundar sunnudaginn 19. maí kl. 14:00 GMT

Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu.

Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.

Á fundinum mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og sína sýn á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi. Þau sem hafa áhuga á að kynnast Höllu Hrund og framboði hennar betur eru hvött til að láta sjá sig.

Hægt er að spyrja spurninga á fundinum, en einnig er hægt að setja inn spurningar hér á viðburðinn eða senda þær á hallahrund@hallahrund.is

Verið innilega velkomin.

Stuðningsfólk Höllu Hrundar