Kæra stuðningsfólk.
Nú eru rúmar tvær vikur til kosninga og nóg eftir. Við erum innilega þakklát fyrir meðbyrinn og stuðninginn sem við finnum frá ykkur.
Halla Hrund hefur haft í nógu að snúast undanfarið en hún var meðal annars í Forystusætinu á RÚV í gærkvöldi sem horfa má á hér.
Sindri Sindrason kíkti í heimsókn til Höllu Hrundar og má horfa á það hér.
Þá fór Halla Hrund í stutta ferð til Kaupmannahafnar og heilsaði upp á Íslendinga sem þar búa. Hún hélt vel sóttan fund í Jónshúsi, sjá myndband.
Baráttan er í fullum gangi og margt skemmtilegt fram undan:
Fram að kosningum heldur Halla Hrund áfram að ferðast um landið og hitta fólk. Í gær voru góðir fundir haldnir á Friðheimum í Reykholti og í Hveragerði. Meðal þeirra staða sem hún á eftir að heimsækja eru Tröllaskagi, Selfoss, Suðurnesin, Akranes, Borgarnes og Snæfellsnes, sjá nánar hér: https://www.hallahrund.is/vidburdir
Við viljum líka koma því á framfæri að hægt er að styðja fjárhagslega við framboðið. Margt smátt gerir eitt stórt og við treystum á ykkar stuðning í þessum efnum. Allar upplýsingar um styrki og varning tengdan framboðinu má finna hér: https://www.hallahrund.is/studningur
Kær kveðja,
Stuðningsfólk Höllu Hrundar