Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi býður til opins fundar í Sagnheimar-Byggðasafn, Vestmannaeyjum. Laugardaginn 4. maí kl. 17:00
Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu. Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.
Á fundinum mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og sína sýn á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi.
Verið innilega velkomin, léttar veitingar í boði
Stuðningsfólk Höllu Hrundar