Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi býður til opins fundar í Randulffssjóhús, Eskifirði. Mánudaginn 6. maí kl. 16:00
Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu. Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.
Á fundinum mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og sína sýn á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi.
Verið innilega velkomin, léttar veitingar í boði.
Stuðningsfólk Höllu Hrundar.