employee-journey-screen

Opinn fundur á Blönduósi með Höllu Hrund

29/4/2024

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi býður til opins fundar á Apótekarastofunni, Hótel Blönduósi, Aðalgötu á Blönduósi mánudaginn 29. apríl kl. 17:00.

Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu. Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina.

Á fundinum mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og sína sýn á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi. Þau sem hafa áhuga á að kynnast Höllu Hrund og framboði hennar betur eru hvött til að láta sjá sig.

Léttar veitingar og öll velkomin!
Stuðningsfólk Höllu Hrundar